Við erum ekki ódauleg..
Ég mun aldrei gleyma því, hversu svalur mér fannst þú vera, þegar þú þeyttist eftir Reykjanesbrautinni á 160.kílómetra hraða á klst, á nýja bílnum þínum, sem þú fékkst daginn áður, ásamt ökuskírteininu. Það var eins og brautin hefði verið sérsniðin fyrir þig. Það breytti engu þótt myrkrið væri skollið á og brautin rennisleip, eftir rigningu dagsins. Þú varst Sjúmakker Íslands og við fylgdumst með þér af aðdáun og áttum ekki orð yfir það, hversu fimur okkur fannst þú vera á bak við stýrið. Ég sem er vanur að nota öryggisbelti, lét ég bara hanga niður með sætinu. Mér fannst algjör óþarfi að spenna það á mig, því mér fannst ég svo öruggur með þér í bíl. Það átti við um okkur öll, sem vorum með þér í bílnum. Ljósastaurarnir þeyttumst framhjá og manni fannst eins og það væri bara einn langur ljósastaur á Reykjanesbrautinni, því þú ókst svo hratt. Ég man að stelpurnar skríktu af gleði, því þeim fannst þú svo svalur og ég fann það á mér, að þær ætluðu allar að “negla” þig í lok ferðar. Ég horfði á þig öfundsjúkur, því þú bjóst við svo mikla kvennhylli. Djöfull get ég ekki beðið eftir því að fá bílprófið, því þá skulu þær allar verða mínar.
Ég mun aldrei gleyma því þegar ég sá þig í dauðateygjunum, eftir að þú þeyttist út úr bílnum, eftir að hafa keyrt á bílinn, sem kom úr gagnstæðri átt. Eitt lítið augnablik misstir þú stjórn á bílnum og nýji bíllinn ónýtur og Reykjanesbrautin blóði drifin. Ég mun heldur aldrei gleyma stelpunni, sem sat frammí með þér. Fallega brúnhærða stelpan, sem skríkti og hló svo dátt, mun aldrei hlægja aftur. Þarna lá hún út um allt í bílnum. Hún var eins og kramin fluga, sem var búið að slíta af vængi og fætur. Ég mun aldrei gleyma stelpunum, sem sátu aftur í með mér. Þær lifðu af, en munu aldrei lifa aftur eðlilegu lífi, nema eðlilegt líf sé að liggja á sjúkrastofnun, það sem eftir er og vera grænmetishausar. Ég mun aldrei gleyma gömlu hjónunum, sem voru í bílnum, sem þú keyrðir á. Þau hefðu auðveldlega geta átt 10 – 15 góð ár í viðbót. Ég mun aldrei gleyma því, hvernig mér leið þarna aftur í. Ég gat mig hvergi hreyft og get það ekki ennþá, því ég er fastur í hjólastól og er algjörlega háður öðrum, því ég get hvorki fætt mig né klætt. Nú mun ég aldrei fá bílprófið, sem ég þráði svo heitt.... né kvennhyllina.
Ef þú heldur að þetta sé allt, þá er ég bara rétt að byrja. Hvað með móður þína og föður, sem elskuðu þig svo heitt? Hvað með systkini þín, sem dáðu þig og horfðu upp til þín? Hvað með ömmu þína og afa, sem voru svo stolt af barnabarninu sínu? Hvað með alla vini þína, sem gátu varla verið án þín? Ertu tilbúinn að steypa öllu þessu fólki í sorg, sem er jafnvel óyfirstíganleg? Hvað með ættingja allra hinna, sem þú stefndir í hættu og myrtir? Hvernig heldur þú að það sé að vera viðstaddur jarðaför síns eigins barns? Hvernig heldur þú að það sé að koma í heimsókn á sjúkrahúsið, þar sem barnið þitt liggur, með næringu í æð og í dái, og á aldrei möguleika aftur á eðlilegu lífi? Hvernig heldur þú að það sé að þurfa að fæða, klæða og skeina barninu sínu, langt fram á fullorðinsaldur?
Hefði ekki bara verið betra að keyra á löglegum hraða eða var “kúlið” alveg að drepa þig? Það gerði það reyndar á endanum.
Garðar Örn Hinriksson
Veisla í tilefni að því að afi Siggi hefði orðið 100 ára
En það vill svo skemmtilega til að John og Matt sem búa út í Nýja Sjálandi voru með hjá Fríði ,en þeir eiga 2 syskyn þar Katy og Jesse.
Ég ætla að láta fylgja hér myndir úr veislunni
Á efstu miyndinni eru Diddi ,Svana, Eydís og Halli
Bryndís með flotta svipinn
Halli og Eydís, gaman gaman :)
Halli , Eydís og John
Andrea
Matt, Elisabet og John
Andrea og Bryndís
Bryndís og Eydís
Maggi, Sólveig , Róbert og Lydía
Lísó
Afi 100 ára
Lísó
Frábært í gærkveldi
Það var alveg frábært í fjölskyldu grillveislunni sem Palli og Kristín buðu í ,í gærkveldi. Alveg æðislegur matur enda frábærir kokkar að störfum. VIð fengum Brekku-Hrauns-lamb og Nautakjöt og góðu kartöflurnar hennar Kristínar og fullt af góðu meðlæti.
Það var mikið fjör eftir matinn, spilaður Olsen - olsen á nýsjálenskan hátt,eða last card eins og það heitir hinu meginn.
Svo var spilað og sungið, Matt spilaði á gitar ,einnig Friðrik og hinir sungu.
John
Matt að spila og syngja
Kristín,Harpa og Rún
Bryndís litla var voða hugsi yfir þessu öllu saman
Afmælisbarn dagsins er
Róbert frændi , hann er 34 ára í dag, innilega til hamingju með daginn Róbert minn!!! Á myndinni með honum er frænka okkar Margrét Steinunn.Ég veit að þú skemmtir þér í dag
Takk fyrir skemmtunina í gærkveldi!
LÍSÓ
Mikið mikið að gerast!!!!!
Í gærkveldi komu til landsins bræðrasynir mömmu (búsettir í N.Z.) þetta eru tvíburarnir John & Matt. Hlakkar mikið til að hitta þá hef ekki hitt John síðan '98 en ekki eins langt síðan ég hitti Matt,enda kom hann með pabba sínum og Jesse bróður þeirra '02
Í nótt eignaðist ég lítinn ( stóran ) frænda, Anna og Matti voru að eignast sitt annað barn og eru þar komin með óskabörnin. Hann var stór sá stutti
Nú eftir smá stund er ég að fara í grillpartý þar sem ég hitti tvíburana og nánast alla fjölskylduna mína
Lísó
Afmælisbörn gærdagsins
Helga Sigríður frænka mín varð 22ja ára í gær, elsku Helga Innilega til hamingju til hamingju með afmælið þitt.
Hin dagman sem átti afmæli í gær er Guðrún Dagbjört, hún varð eins árs ,
Elsku Guðrún Dagbjört, til hamingju með fyrsta afmælið þitt
afmælisbarn
Elsku Pétur Snær innilega til hamingju með 6 ára afmælið , ég vona að þú hafir skemmt þér vel úti í USA hjá Ölöfu frænku og krökkunum.
Afmælisbörn í lok Ágúst mánaðar
Jónas móðurbróður minn varð 62ja ár 20. Ágúst
Hreinn sonur hanns varð 37 ára sama dag og er hann hér með fjölskyldu sinni upp í hlíð heima.
Ég óska þeim feðgum innilega til hamingju með daginn og vona að fjöskyldan hafi notið dagsins.
Afmælisbarn dagsins
Þar sem ég er með nýja tölvu ,þá er myndin af Pétri í þeirri gömlu. Ég vona að ég geti bjargað því fljótt.
Afmælisbörn dagana 20. og 21. fara vonandi inn á morgun eða um leið og ég er búin að fá allar myndirnar.
Lísó

