Textareitur

Innskráningar kubbur

Prófíll

  • Nafn: Elisabet Sigmars
  • Um mig: Elisabet heiti ég og er 38 ára ég hef mjög gaman af börnum, tónlist og ljósmyndun. Ég byrjaði mjög ung að taka myndir og hlusta á tónlist.Með mér á myndinni er Íris systir mín. Myndin er tekin á á ísl. meistara móti í dansi í Laugardagshöll.

Atburðarteljari

Könnun

Borðar þú hollan mat

Myndaalbúmið

Klukkan

Leikur dagsins

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Afmælisbarn dagsins er

17. maí 2007 klukkan 14:22

Lydía frænka mín, hún er 17 ára í dag, með henni á myndinni er Harpa Lind systir hennar.
Elsku Lydía , innilega til hamingju með daginn. Vona að þú  eigir skemmtilegan dag
.
Glottandi

Ekki minn dagur

09. maí 2007 klukkan 18:05

Þetta er sko EKKi minn dagur. Rafmagnið fór af í 4 mín um kl.8 morgun og þegar ég vaknaði og kveikti á útvarpinu var allt í klessu.geislaspilaradiskurinn snérist sem hann gerir alldrei þegar maður opnar útvarpið, svo voru allar stöðvarnar dötnar úr mynni og ekki hægt að slökkva á tækinu aftur, sem sakt alltaf rafmagn á því. Það er alveg sama hvað ég gerð.lét gera. Það virkaði ekki neitt.  Það var farið inn í herbergi og náð í gamla tækið þar sem ekki gekk nógu vel að hlusta á útvarpi í gegnum tölvuna, alltaf að detta út. Þvílik viðbrigði á hljómburði , tækið er orðið svo gamalt.

Afmælisbarn gærdagsins er

06. maí 2007 klukkan 21:44
Ómar mágur minn, en hann varð 36 ára í gær. Elsku Ómar innilega til hamingju með daginn. Ég vona að þú fáir afmæli þegar þið eruð flutt. Brosandi

Myndirnar

06. maí 2007 klukkan 13:22
Jæja önnur tilraun í dag til að setja myndirnar inn


Sigmar og Klara

Enn er dansað

Systramynd, Elisabet  og Íris

Elisabet og Sigmar frændi
Rúnar frændi

Vinrnir Sigmar og Bárður

Unnur að borða Doritos sem amma Unnur gaf.

Skruddan mín og Rúnar

Mikið um að vera

06. maí 2007 klukkan 00:32
Nú er loksins komið að því að blogga, mikið búið að vera um að vera hjá mér. Frænka og Dóri komu í bæinn á Fimmtudaginnn fyrir rúmri viku og komu beint hingað með Djöflatertu og Ástarpúnga, Nammmmmmmmmmmm..............  Á Sunnudaginn var , var haldið upp á 10 ára afmæli Einstkara barna sem er félag barna með sjaldgæfa og  alvarlega sjúkdóma. ég vona að fljótlega verði væntanlegar myndir frá afmælinu inn á síðuna. En það má sjá nokkrar myndir inn á þessari síðu undir myndasíðan mín.
Á Þessari helgi er ég að fylgjast með Sigmari systursyni mínum á Íslandsmeistari móti í samkvæmisdönsum. Það er mjög gaman. Ég ætla að setja inn myndir hér á síðuna á morgun annars eru myndir á myndasíðunum mínum.það eru myndir frá danskeppninni inn myphoto síðunni.


Elisabet.

Afmælisbörn dagsins

22. apríl 2007 klukkan 12:43


Eru Rósi móðurbróðir minn , hann er 57 ásra í dag og Barbara tengdamóðir hanns, hún er 76 ára í dag. Elsku Rósi og Barbara ,ég vona að þið hafið notið afmælisins vel í faðmi fjölskyldunnar.
En þau eru bæði búsett á Nýja Sjálandi og búin að halda afmælið þar sem þau eru hálfum sólahirngi
á undan okkur hér heima.

Elisabet

Apríl afmælisbörn

22. apríl 2007 klukkan 12:33

Þrátt fyrir að hafa reynt mikið fengust ekki myndir af eftirfarandi afmælisbörnum í Apríl.

Halli bróðursonu mömmu varð 30 þann 14. Innilega til hamingju með þennan stóra áfanga Halli minn
Grétar Mar frændi minn varð 19 ára einnig þann 14 . Til hamingju með daginn Grétar minn.
Þann 16. Varð stóra frænka 15 ára , innilega til hamingju með afmælið þitt Andrea mín
Elisabet

sumarið

19. apríl 2007 klukkan 17:13

Þetta er MT.Taranaki sem er uppáhaldasfjallið mitt á Nýja Sjálandi en þar er að koma vetur þegar það
er að koma sumar hja okkur. Ég óska óska öllum Gleðilegs sumars og þakka fyrir veturinn og þið sem eruð
að fá vetuirnn í heimsókn ég vona að hann verði ekki erfiður við ykkur.


Elisabet

Góða páskahátíð

07. apríl 2007 klukkan 23:56


Já,þá er komið að páskunum einu sinni enn . Ég hef tekið eftir þvi undanfarin ár að hefðir Föstudagsins langa hafa breyst mikið frá því að ég var að alast upp. Það mátti ósköp lítið gera. Enda fannst manni dagurinn langur, hef heyrt mömmu tala um að þega hún var  að alast upp þá var dagurinn enn lengri því að þá mátti ekkert gera. En í dag er mönnum ekkert heilagt. Það má nánst allt. Ég er líka alin upp við að það er alltaf fiskur þennan dag en það er nú eiithvað að breytast.Reyndar ekki hjá minni nánustu fjölskyldu en ég hef amk, heyrt um tvö matarboð þar sem voru steikur í gær, föstudainn langa.
Nú um páskana belgir maður sig út af mat og nammi en það er nú bara gott í hófi eins og allt . Ég er búin að hafa ótrúlega mikið að gera eins og alltaf en það er nú bara af því góða.
Ég er í fríi framm á Miðvikudag og er þá búin að vera í fríi í viku og var það frí vel þegið. Þeir sem mig ekki þekkja halda að ég sé að tala um vinnu en því miður er svo ekki ég er að tala um sjúkraþjálfun , ég má reyndar alls ekki við svona löngu fríi. En það er mjög gott að detta út úr rútínunni af og til. Best var þegar ég komst vestur í fríum (heim) en eins og staðan er orðin þá er það búið . En þá er bara að fara yfir til mömmu eða hún að koma til mín og við að borða góaðn mat saman og auðvitað páskaegg, ekki má gleyma því.

Ég vona að allir hafi góða páska og segi Gleðilega páska við lesendur mína.

Stofnfrumubreytingar

04. apríl 2007 klukkan 18:55

Ákvað að setja inn færslu fyrir Páskana, hef nú alls ekki verið dugleg við að blogga. En vonandi breytist það. Ég veit ekki hversu margi sem lesa þetta sáu Ísland í dag í gær þar sem viðtal var við Guðjón Sigurðsson formann MND og Árnný Guðjónsdóttir dóttir hanns um rannsóknir á stofnfrumbreytingum. Mér fynnst út í hróa að ekki megi rannsaka þett ef það bjargar fólki eða lengir líf fólks . Þeir sem ráða hér eru bara ekki að hugsa um heilsu fólks allavega ekki að þeir geti veikst alvarlega.

Elisabet