Textareitur

Innskráningar kubbur

Prófíll

  • Nafn: Elisabet Sigmars
  • Um mig: Elisabet heiti ég og er 38 ára ég hef mjög gaman af börnum, tónlist og ljósmyndun. Ég byrjađi mjög ung ađ taka myndir og hlusta á tónlist.Međ mér á myndinni er Íris systir mín. Myndin er tekin á á ísl. meistara móti í dansi í Laugardagshöll.

Atburđarteljari

Könnun

Borđar ţú hollan mat

Myndaalbúmiđ

Klukkan

Leikur dagsins

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Prufu fćrsla og myndir

16. mars 2008 klukkan 19:03

i
Það gerði Stebbi líka

Gospelkór Reykjavíkur og Óskar Einarsson hinn eini sanni.

Ég hef ákveðið að setja inn færslu hér og vita hvort myndir tolla á þessari síðu sem þær gera ekki á blog.central nema stundum. Það má vel vera að ég færi mig yfir ef mér gengur vel hérna megin. Þetta kemur í ljós.
Ég fór á tónleikana með Sálinni á Föstudagskvöldið og var mjög gaman , frábær lög og hljómsveitin hreint frábær en eitt skygði á allt kvöldið hvað mig varðar . Við sem erum í hjólastól þurftum að vera upp á svöluunum og fyrir vikið á ská við sviðið og er þetta nú orðið alltaf þegar það eru standandi tónleikar en , á 06.06.06 var alveg frábær stemning en þá vorum við sem erum í stólum líka á háum palli , eins var með tónleika sem Gospel kór Reykjavíkur hélt sama ár að mig mynnir og á Rock Star en Magni bauð 100 manns úr  Einstökum börnum félagi barna með alvarlega ,sjaldgæfa sjúkdóma og trygði ég mer miða og var þessi pallur þá og kom sér vel þá enda hefðum við ekki séð neitt sem erum í stólum, Reyndar var stúka sér merkt félaginu sem mér fannst mjög flott.
jæja nú er að sjá hvernig er að sjá hvort myndir frá Sálar tónleikunum tolla inni.


Líso

Flutt

21. nóvember 2007 klukkan 20:53
Ég er flutt hingað http://blog.central.is/liso

Maggi Valli 21 árs

11. nóvember 2007 klukkan 22:49
Þið sem eruð búin að lesa síðuna mína í dag eru pottþétt búin að taka eftir því að lesblindu púikin tók völdin í síðustu færstu en það hefur verið lagfært.
Salan gekk framar vonum þá 2 tíma sem ég var í Smáralindinni í dag. Það þurti reyndar að fræða ansi marga um hvað félag Einstök börn er. Við vorum með bækling sem gaf fólki smá mynd af því hvað Einstök börn eru. Það komu nökkur börn til okkur og spurðu okkur hvað við værum að selja og fyrir hvern ,við reyndum að útskýra og spurðum þau svo hvort þau vitu ekki bara lesa um þetta og létum hvert þeirra hafa sinn bækling og með þá fóru þau glöð í burtu.
Þegar var að koma að því að ég var að fara var kallað í mig og þar var Ásta Vala, en hún var sjúkraþjálfarinn minn fyrir svona13 - 14 árum ,við þurftum aðvitað að spjalla og svo keyti hún 2 korta pakka af mér og þegar ég var að fara frá borðinu var aftur kallað í mig og þar var komin bekkjar systir mín ú barnaskóla , hún Óla Bjórg, ég hef ekki séð hana í 6 þar sem hún bjó út í Bandaríkjunum, Við náðum að tala aðeins saman . Bíllin var að koma að skækja mig og hún var að drífa sig heim að undirbúa matarboð. Mindarskapurinn.

Maggi Valli frændi minn er 21 árs í dag, Fríður, Maggi Valli,Björg og Andrea kýktu við fyr í kvöld , Andrea var að koma með salerfnis pappir sem við vorum að kaupa af henni og svo komu þau líka með kökur úr afmælinu sem voru mjög góðar. NAMMMM.........
Á morgun á Elísa frænka afmæli og verður hún sko 5 ára.


Lísó

Jólakortasala og stuđningu viđ foreldra barna međ sjaldgćfa ,alvarlega sjúkdóma

11. nóvember 2007 klukkan 13:29
Í gær fór ég í Smáralindina að selja jólakort  og annan varning sem við höfum látið gera fyrir okkur. Ég var þarna í 2 klt. Fannst mér þetta mjög gaman. Fólk tók mjög vel í söluna. Reyndar fynnst mér margir ekki vita hvað EINSTÖK BÖRN eru og boðar það kanski gott en fyrir ykkur þarna úti þá er Einstök börn stuðningsfélag barna með sjaldgæfa, alvarlega sjúkdóma. Þetta félag er 10 ára og hefði alveg mátt vera til þegar ég fæddist eða var lítil en þá var engin stuðningur við foreldra með börn með sjúkdóma sem voru sjaldgæfir, alvarlegir eða jafnvel hvorutveggja.
HEIMUR BATNANDI FER.

Lísó

Sala á jolakortum og grýlukertum Einstakra barna

09. nóvember 2007 klukkan 16:53
Ekkir hef ég staðið við það að vera dugleg að blogga vegna anna . En nú ætla ég að gefa mér tíma til að segja aðeins frá síðustu dögum a.m.k.
Á þriðjudaginn komu Þórunn og Palli í mat til okkar og var það mjög gaman. Ég set myndir inn frá því albúmið mitt fljótlega.

Fyrir 2 vikum fékk ég sjúkrarúm, betra seint en alldrei, ég hefði þurft að vera búin að fá það fyrir mörgum árum. Það munar svo miklu fyrir mig og þá sem þurfa að hlúa að mér þegar ég er lasin eða veik

Fyr í vikunni var ég að pakka jólakortum fyrir Einstök börn sem gekk mjög vel , í gær fór ég svo á félagsfund hjá félaginu og þá hélt ég áfram að pakka og svo á helginni verð ég að selja kortin í smárlind kortin eru 5 í pakka og kostar pakkinn 600 kr og er magn afs. hægt er að sjá mynd af kortunum og grýlukertum sem félagið lét gera og kosta 1500 kr. inn á http://einstokborn.is

þannig að það er nóg að gera frammundan. Ég ætla ekki a lofa að ég verði duglegri að blogga því að ég stendi greinilega ekki við það.


Lísó.

Eru jólin núna ?

09. október 2007 klukkan 16:58
þá er að hætta þessari bloggleti , það er búið að vera mikið að gera og er það enn ,ég er nýbyrjuð í fjarnámi sem er stendur í 12 mánuði og ætla ég að reyna að vera dugleg og leggja mikið á mig.
Hvað mig varðar ætla ég að leggja mesta áherslu á tölvur,en til að útskýra þá eru þetta námskeið sem ég get valið úr ,og get ég valið úr ansi mörgum.

Fyrir viku síðan komu Þórunn og Palli í heimsókn en þau eru í heimskókn hér á landi, búa út í Portúgal og var mjög gaman að hitta þau, ég leisti þau út með vestfyrskum harðfisk og gáfu þau mér mjög fallegt fyðrildi sem er t.d. hægt að hafa sem skraut í blómapotti Ég er ekki búin að setja myndirnar inn sem ég tók þegar þau komu.

3ja ára frænka mín sagði við mömmu sína um daginn , mamma, eru jólin núna?
Brosandi Hún hefur örugglega séð jólaútsölu auglýsinguna í sjónvarpinu. Mamma hennar útskýrði fyrir henni hverjir ættu æfmæli áður en jólin kæmu. (Eru ansi margir öðrum hjá mömmu hennar í Okt.)

Lísó

Nýjar myndir

30. september 2007 klukkan 23:06
Nú eru komnar nýjar og nýlegar myndir inn undir sarpurinn. Endilega kýkið Brosandi

Mikiđ ađ gerast

23. september 2007 klukkan 00:07
Eins og sjá má hefur síðan heldur betur tekið stakka skiptum, mynduin á bannernum er tekin heima á Ísafirði. Frændi minn tók hana fyrir 2 árum. Hann setti hana saman úr ca.5 myndum. Mér fynnst hún njóta sín mjóg vel þarna. Hreinn , Takk fyrir að senda mér hana aftur,ég er viss um að ég fynn mína núna.
Við Jónheiður fórum út að borða á Lækjarbrekku á miðvikudaginn og var það alveg meiriháttar. Þjónustan alveg einstök. Ekkert mál þó að maðu sé á sérfæði, því var bjargað eins og ekkert væri sjálfsagaðara, kanski er það ,það. Þetta var yndislegt kvöld. Það er verst að ég er ekki búin að taka myndirnar úr myndavélinni.
Nú koma Þórunn og Palli til landsins seinnipartinn á morgun, ég hlakka svo til að hitta þau. Þap gerist anað hvert ár. En ég tala töluvert oft við þau og við Þórunn erum í msn sambandi.Þau búa út i Portúgal.

Prófa nýtt

11. september 2007 klukkan 17:46

Bleikt er nú ekki beint uppáhalds liturinn minn en ég ákvað að hafa þetta útlit í smá tíma og setti mynd sem ég tók út í Köben 2004 . Æðisleg ferð. Ég ætla að gera þetta af og til og setja myndir frá Ísafirði líka. En sá fjörður er mér afar kær eins þeir vita sem mig þekkja.

Nú líður óðum að því að Þórunn og Palli komi til landsins, hlakka ég mikið til. Hlæjandi
Fríður og Bryndís fóru með mömmu að versla á Fimmtudaginn og Föstudaginn komu Þau öll fyrir utan Magga Valla og Björg hingað til okkar og fannst Bryndísi ansi skrýtið að vera að fara heim til Katý frænku ,þar sem hún þekkir ekkert annað heimil hjá henni en heimil mitt. En svo þegar hún kom yfir mundi hún vel eftir dótakassanum. Hún varð ansi glöð þegar hún fann bollastellið í körfunni

Lísó

Gestkvćmt

29. ágúst 2007 klukkan 00:54

Í gær Mánudag var gestkvæmt hér á bæ, þegar ég var að koma heim frá Samma lækni kom Rúna frænka
öllum að óvörum þar sem við vissum ekki að hún væri komin í bæin ,þannig að það var mjög gaman
eins og alltaf þegar hún kemur. Dóri kemur vonandi í næstu ferð. Þegar hún var ný farin komu Fríður
Andrea og Bryndís.
Bryndís er á myndínni hér að ofan og sést aðeins í Andreu stóru systir. Mér fynnst þetta mjög
skemmtileg mynd af Bryndísi þar sem hún er að tjá sig mikið á meðan hún er að borða súkkulaði
rúsínur. þær komu með afmælistertu og Bryndís fékk rauða peninga til að setja í baukin ,en hún
er ný orðin 3já ára.

Hér er Bryndís að sýna frænku nýju eyrnalokkana sem Maggi Valli og Bjögrg gáfu  henni . Svaka pæja
með rauða lokka.